Borgarbyggð tilkynnir að jarðvegsrannsóknir muni fara fram á svæðinu við hlið íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi dagana 15.–16. júní, í tengslum við undirbúning fyrirhugaðra framkvæmda við Þorsteinsgötu 1-3.
Rannsóknirnar fela í sér boranir og mælingar á jarðvegi. Á meðan framkvæmdum stendur má búast við tímabundnum truflunum, svo sem hávaða og aukinni umferð vinnuvéla.
Borgarbyggð biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks og brýnt að láta vita ef öryggi við vinnusvæðið er ábótavant.
Nánari upplýsingar veitir:
framkvaemdir@borgarbyggd.is
Tengdar fréttir

Íbúafundir um mótun þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027
Íbúafundir um þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027 Borgarbyggð býður íbúum til íbúafunda um þjónustustefnu sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Þar gefst íbúum tækifæri til að kynna sér stefnuna, ræða áherslur hennar og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Hvað er þjónustustefna? Þjónustustefna er stefna sveitarfélagsins um þá þjónustu sem það hyggst veita í öllum byggðarlögum þess, einkum utan stærstu þéttbýliskjarna. Í henni kemur fram …

Jólagjöf til starfsfólks Borgarbyggðar
Borgarbyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins. Fyrirkomulagið verður þannig háttað að starfsmenn fá gjafabréf að andvirði 15.000 kr. ásamt upptalningu á fyrirtækjum sem skrá sig í verkefnið. Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða upp í kaup á vöru og þjónustu í Borgarbyggð. Viðkomandi …