Landsnet býður til opinna kynningarfunda og vinnustofa vegna valkostagreiningar fyrir Vegamótalínu 2 milli Vatnshamra í Borgarbyggð og Vegamóta á Snæfellsnesi.
- Hótel Hamar í Borgarnesi: 7. október kl. 20:00
- Breiðablik í Eyja- og Miklaholtshreppi: 12. október kl. 20:00
Á fundunum er verkefnið kynnt ásamt þeirri vinnu sem fram undan er. Að kynningu lokinni verður unnið í smærri hópum þar sem þátttakendur geta komið á framfæri hugmyndum að línuleiðum og bent á helstu áskoranir við leiðarval á svæðinu.
Markmiðið er að fá fram ólík sjónarmið snemma í ferlinu. Allar tillögur verða metnar út frá sömu forsendum, meðal annars með tilliti til umhverfis, öryggis og hagkvæmni, verðmæta og samfélags.
Valkostagreiningin fer fram áður en hið lögbundna umhverfismatsferli hefst og mun nýtast við rannsóknir og frekari greiningar verkefnisins
Vegamótalína 2 mun liggja frá tengivirkinu á Vatnshömrum í Borgarfirði til Vegamóta á Snæfellsnesi. Línan verður byggð sem 132 kV loftlína og henni haldið uppi með stöguðum stálröramöstrum. Fyrst um sinn verður hún rekin á 66 kV
Markmið framkvæmdarinnar er að tryggja tvítengingu Snæfellsness og auka afhendingaröryggi. Í dag er Vegamótalína 1 eina tenging flutningskerfisins fyrir Snæfellsnes.
Með Vegamótalínu 2 skapast betri skilyrði til viðhalds og áframhaldandi reksturs Vegamótalínu 1 og mun hún standa áfram. Eins og með allar eldri línur mun Vegamótalína 1 fara á endurnýjunaráætlun
Við hvetjum öll sem láta sig málið varða til að mæta og taka þátt í samtalinu.
Nánar um framkvæmdina má finna á vef Landsnet.
Tengdar fréttir

Íbúafundir um mótun þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027
Íbúafundir um þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027 Borgarbyggð býður íbúum til íbúafunda um þjónustustefnu sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Þar gefst íbúum tækifæri til að kynna sér stefnuna, ræða áherslur hennar og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Hvað er þjónustustefna? Þjónustustefna er stefna sveitarfélagsins um þá þjónustu sem það hyggst veita í öllum byggðarlögum þess, einkum utan stærstu þéttbýliskjarna. Í henni kemur fram …

Jólagjöf til starfsfólks Borgarbyggðar
Borgarbyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins. Fyrirkomulagið verður þannig háttað að starfsmenn fá gjafabréf að andvirði 15.000 kr. ásamt upptalningu á fyrirtækjum sem skrá sig í verkefnið. Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða upp í kaup á vöru og þjónustu í Borgarbyggð. Viðkomandi …