26. ágúst, 2026
Fréttir

Þriðjudaginn 1. september hefja Veitur útskolun á stofnlögn vatnsveitu frá Grábrók að Borgarnesi til að tryggja eins hreint neysluvatn og kostur er. Áætlað er að vinnan taki 2–3 vikur.

Á meðan útskolun stendur yfir má gera ráð fyrir lágum vatnsþrýstingi og jafnvel tímabundnu vatnsleysi hluta úr degi. Útskolunin getur einnig valdið gruggi í vatninu, einkum á ákveðnum svæðum ofarlega í Borgarfirði. Ef vatnið er gruggugt er ráðlagt að láta kalt vatn renna um stund þar til það verður tært.

Aðgerðir til skemmri og lengri tíma

Veitur hafa borað þrjár rannsóknarholur í landi Hvassafells og nú er verið að rannsaka gæfni og gæði vatnsins þar.

Tilraunaverkefni með síur sem hafa staðið yfir í sumar þurfa frekari prófanir þar sem þær hafa enn sem komið er ekki reynst jafnvel og við vonuðumst til.

Veitur afhenda vatn við stofnlögn til ákveðinna svæða, svo sem Varmalands og sumarhúsahverfa, en sjá ekki um útskolun dreifikerfa annarra vatnsveitna.

Veitur skola úr lögninni til að tryggja íbúum hreint neysluvatn.

Tengdar fréttir

4. nóvember, 2026
Fréttir

Íbúafundir um mótun þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027

Íbúafundir um þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027  Borgarbyggð býður íbúum til íbúafunda um þjónustustefnu sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Þar gefst íbúum tækifæri til að kynna sér stefnuna, ræða áherslur hennar og koma sjónarmiðum sínum á framfæri.  Hvað er þjónustustefna?  Þjónustustefna er stefna sveitarfélagsins um þá þjónustu sem það hyggst veita í öllum byggðarlögum þess, einkum utan stærstu þéttbýliskjarna. Í henni kemur fram …

3. nóvember, 2026
Fréttir

Jólagjöf til starfsfólks Borgarbyggðar

Borgarbyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins. Fyrirkomulagið verður þannig háttað að starfsmenn fá gjafabréf að andvirði 15.000 kr. ásamt upptalningu á fyrirtækjum sem skrá sig í verkefnið. Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða upp í kaup á vöru og þjónustu í Borgarbyggð. Viðkomandi …