Veitur eru nú að leggja nýjar inntakslagnir að fjölnota íþróttahúsinu í Borgarnesi. Framkvæmdirnar hafa í för með sér þrengingar á gönguleiðum að og framhjá UMSB-húsinu sem hýsir Frístund, þar á meðal gönguleið grunnskólanemenda sem þverar svæðið.
Miðvikudaginn 6. maí hefst tengingarvinna við Skallagrímsgötu og mun hún taka að lágmarki tvær vikur. Þar með lokast allur gegnumakstur í Skallagrímsgötu á þeim kafla sem er á móts við veg að Fjölnota íþróttahúsinu.
Á meðan á lokuninni stendur er akstursleið að íþróttahúsinu einungis um Þorsteinsgötu.
Gangandi vegfarendur og bílstjórar eru beðnir um að sýna aðgát og fylgja merkingum á svæðinu. Foreldrar eru hvattir til að kynna börnum fyrir breyttum aðstæðum í tengslum við gönguleiðir við skóla og íþróttamannvirki.
Nánari upplýsingar veitir Orri Jónsson, EFLA — ojo@efla.is

Tengdar fréttir

Íbúafundir um mótun þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027
Íbúafundir um þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027 Borgarbyggð býður íbúum til íbúafunda um þjónustustefnu sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Þar gefst íbúum tækifæri til að kynna sér stefnuna, ræða áherslur hennar og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Hvað er þjónustustefna? Þjónustustefna er stefna sveitarfélagsins um þá þjónustu sem það hyggst veita í öllum byggðarlögum þess, einkum utan stærstu þéttbýliskjarna. Í henni kemur fram …

Jólagjöf til starfsfólks Borgarbyggðar
Borgarbyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins. Fyrirkomulagið verður þannig háttað að starfsmenn fá gjafabréf að andvirði 15.000 kr. ásamt upptalningu á fyrirtækjum sem skrá sig í verkefnið. Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða upp í kaup á vöru og þjónustu í Borgarbyggð. Viðkomandi …